Hótelgleðin
Einn af gestunum á hótelinu er búin að vera hjá okkur í tvær vikur. Hann er að taka upp heimildarmynd um íslenska hesta þannig að Skagafjörðurinn er tilvalin staður fyrir hann að vera á. Í gær fór ég svo að spjalla við hann og fór að spurja hann út í fyrri verkefni. Hann er sem sagt búin að vera í heimildargerð síðan 1960 og tók upp heimildamyndir um bæði Bítlanna og Rolling Stones. Þannig að ég eyddi gærkvöldinu í að hlusta á hvernig væri að túra með þeim. Hvernig Lennon, McCartney, Harrison, Starr, Jagger og restin af liðinu var back in the days. Úfff hvað ég hefði gefið mikið fyrir að vera á staðnum líka...
Það er svo asnalegt að vinna á hóteli þar sem engir símar eru á herberginu. Þannig að þegar fólk er að biðja um að láta að vekja sig þarf ég að fara og banka á hurðina hjá því. Sem er svo sem ekki svo slæmt út á fyrir sig nema þegar ég fæ 100 manna hópa sem eiga öll að vakna klukkan hálf átta. Þau eru staðsett á þremur mismunandi hæðum og í 50 herbergjum. Ég sem sagt er hlaupandi eins og asni að berja á hurðir og reyna að ná þeim öllum á sama tíma. Fáránlegt en örugglega mjög gaman að horfa á.

1 Comments:
Ert ÞÚ að vinna við að vekja fólk??? Bwahahahahah!!!
Smútschí sæta mín ;)
Post a Comment
<< Home